Rennilínan (e. running line)
- Mar 19
- 4 min read

Er mér alvara? Skrifa um rennilínuna? Halda má að rennilínan sé einfaldasti hluti línukerfisins og það gæti verið rétt. En að ekkert varðandi rennilínu sé umhugsunarvert passar ekki. Kíkjum á málið.
Hvað er rennilínan?
Rennilínan (e. running line) nær frá línuendanum að afturmjókkandi hluta haus/belgs flugulínunnar (e. rear taper) og sameinast henni. Fyrir neðan er Amplitude Anadro með 40 fet af rennilínu.

Hvers vegna þurfum við rennilínu?
Massinn í Anadro er aðallega í haus/belg flugunnar. Hausinn er sú þyngd sem við notum okkur til að sveigja/hlaða stöngina og þegar hausnum er kastað þá dregur hann rennilínuna út (rennur út). Köstum nú með og án rennilínu og sjáum muninn.
Við skerum af rennilínuna og hnýtum undirlínuna beint við hausinn. Hausinn fer sína leið eins og áður og dregur út undirlínuna en það verður mjög óþægilegt að „strippa” inn hausinn með grannri undirlínunni. Við þurfum að hafa undirlínu af hjólinu til taks og ekkert flækist eins rækilega og þunn undirlína.
Anadro lína er hönnuð fyrir löng köst – miklu lengri en lengd haussins sem er 60 fet. Þess vegna er miklu betra að hafa þessi 40 fet sem rennilínu. Hún er betri að handfjatla og flækist ekkert í nánd við undirlínuna. Rennilínan er bæði grönn og sjálfsmyrjandi og hefur lágan núningsstuðul.
Jafnvel þó við köstum að 100 fetum þá höfum við góða stjórn á kastinu og getum vippað (e. mendI) um leið og við höfum strippað að afturmjókkun haussins. Lína með langri afturmjókkun (e. rear taper) getur farið bil beggja – löng köst og gefur síðan möguleiki á að vippa línunni og við höfum góða stjórn á kastinu og rennslinu.
Skoðum aðra línu t.d. MPX. Haus MPX er bara 36 fet (#6 lína). Koma má línunni út hraðar en Anadro enda er hausinn talsvert styttri og því auðveldara að hlaða stöngina. Hún leggst auðveldlega út vegna þess að massinn er mestur framarlega í hausnum. Frammjókkandi hlutinn (e. front taper) er nú 5 fet og við getum lagt út fluguna varlega. Ef við köstum þessum haus langt þá verður miklu þægilegra að strippa inn rennilínu fremur en að vesenast með undirlínu. Hausinn er 36 fet og við höfum 9 feta taum og getum auðveldlega veltikastað þessum 45 fetum. Flestir kastarar geta ekki veltikastað lengra en 50 fet og þurfa þess sjaldan. Hægt er að veltikasta Anadro línunni lengra þar sem hausinn er 60 fet. Það er auðvitað vegna massans - rennilínan er einfaldlega of létt til að hreyfa hausinn sem er umtalsvert þyngri.

Trúir þú mér núna? Vissulega þurfum við rennilínu. Lína sem hefur afar granna rennilínu má kasta lengst en hún vill flækjast. Of grunn rennilína er óþægileg viðkomu og erfið að handfjatla og ekkert nema vesen. Grönn lína hefur lægri núningsstuðul en flækist meira en með því að gera hana stífari þá má vinna gegn því að hluta.
Stíf lína krullast auðveldlega (e. coils) en réttist þegar línan er strekkt, en því gleymum við einatt. Rennilínan flækist minna ef hún er sleip. Því sleipari því betra. Báðar línurnar að ofan eru sjálfsmyrjandi en viðbót af sílikon gerir þær enn sleipari og minnkar flækjur.
Mjög þykk rennilína er þyngri og hefur hærri núniningsstuðul. Lausnin liggur í málamiðlun í hönnun afturmjókkandi hlutans. Við höfum ekkert val á þvermáli rennilína sem við kaupum en það er í lagi því framleiðendur hafa fundið bestu málamiðlanir fyrir hverja línuþyngd.
Ímyndum okkur að við sveiflum flugu (e. swing a fly) með þessum línum og við höfum 55 feet úti og þurfum að vippa línunni. Það gengur vel með Anadro línunni vegna þess að það er nægjanlegur massi í topplykkjunni til að hreyfa línuna. Hinsvegar er þunn rennilína í topplykkju hjá MPX og ekki nægur massi til að hreyfa/vippa línunni.
Að kasta með yfirhengi (e. overhang – rennilína utan topplykkju) er torvelt fyrir flesta kastara. Sé litið á myndirnar af línunum þá er greinilegt að Anadro er betri fyrir löng köst. Sé 70 fetum af línu haldið á lofti þá er yfirhengið 10 fet fyrir Anadro en 38 fet fyrir MPX. Hlutfall af rennilínu af haus lengd er því mjög mikilvægur þáttur. Þeir sem geta kastað með yfirhengi gera það með því að halda rennilínunni og hausnum í þráðbeinni línu. Sé það gert þá getur grönn létt lína kastað þykkari og þyngri línu. Ef ekki er þráðbein lína þá gengur brösulega að kasta með yfirhengi.
Breyturnar fyrir rennilínuna
Þvermál er mikilvægt. Grönnum línum má kasta lengra en þykkum Þær eru léttari og hafa minna viðnám. En grönn krulluð rennilína hefur sína mínusa. Vindur blæs henni til og frá í bát og það leiðir til flækju. Krullaðar línur flækjast í sífellu. Auðvitað má strekkja krullurnar úr línunni en veiðimenn eru værukærir. Þykkari rennilína gefur meiri stjórn á kastinu og vippi. Hinsvegar þá verður kastið styttra vegna þyngdar og viðnáms.
Massinn er mikilvægur. Grannar rennilínur eru léttari (sjá að ofan). Að auki getur ekki létt rennilína í topplykkju stjórnað afgangnum af línunni. Masssinn er einfaldlega ekki nægjanlegur. Þegar þvermál rennilínunnar eykst þá eykst einnig massinn. Það gefur meira vald á kastinu og vippi á línunni en styttir köstin (sjá að ofan). Ef línan væri full sökklína þá væri rennilínan úr sama efni með sömu eðlisþyngd og hausinn. Væri grönn en samt þung en vipp vangavelturnar eiga ekki við um sökklínur.
Stífleikinn. Þunnum stífum línum má skjóta langt. Grönn rennilína flækist auðveldlega en stífleikinn er nokkurs konar móteitur ef línan er strekt duglega.
Núningsstuðullinn (e. coefficient of friction). Við vitum að ofursleipar, grannar og léttar rennilínur má kasta lengst af þessum samsetningum. Ef allar aðrar breytur eru eins þá mun sleipasta rennilínan kastast lengst. Við höfum jafnvel hrjúfar (e. textured) og sjálfsmyrjandi skotlínur.
Þéttleikinn. Oftast eru rennilínurnar fljótandi og tengjast haus sem getur verið fljótandi, hægsökkvandi eða með breytilegum þéttleika. Þegar rennilínan og línuhausinn allur eru ein heild þá er línan kölluð samþætt lína (e. integrated). Þannig er rennilínan óaðskiljanlegur partur af framþungri línu. Flestar samþættar línur (sem eru framþungar) hafa granna, létta rennilínu en mjög þunga hausa.
Flestar rennilínur hafa sama þéttleika alla sína lengd. Það eru þó til rennilínur með tveimur mismunandi þéttleikum og sökkeiginleikum eins og Sonar Stillwater Seamless Density

Ég vona að mér hafi tekist að sannfæra lesandann um að rennilínan er mikilvægur hlekkur keðjunnar. Ég myndi sárlega sakna hennar ef hún væri ekki á sínum stað í næstu veiðiferð. Og nú lesandi góður hefur þú nokkra hugmynd um hvernig þetta virkar.



Mjög fróðlegt og gagnlegt.