top of page

Flugukast sitjandi

  • 2 days ago
  • 2 min read
Kastað sitjandi frá kajak eða slöngubát t.d. - Línan skellur á vatnsborði
Kastað sitjandi frá kajak eða slöngubát t.d. - Línan skellur á vatnsborði

Kastað sitjandi kayak eða slöngu bát

Að kasta úr sitjandi stöðu er talsvert frábrugðið því að kasta standandi. Hreyfingar líkamans eru takmarkaðar þegar setið er. Að auki eru hreyfingar olnboga einnig takmarkaðar í kajak eða slöngubáti (e. belly boat) sem þrengir að möguleikum á togi (e. haul). Setið er lágt og línan verður þar með nærri vatnsborði og skellur oft á vatnsborði og langur burður á línu (e. carry) er vandasamur.


Förum yfir stöngina, línuna og kasttæknina.


Stöngin

Lengri stangir ná meiri hæð, en með aukinni lengd verður einnig erfiðara að nota þær. Auðveldara er að kasta með níu og hálfs feta langri stöng en tíu feta langri stöng en níu og hálft er styttri osfrv.. Ég get ekki kastað með stöng lengri en ellefu fet (einhenda) og þeim mun lengri sem stöngin verður þeim mun erfiðara verður að landa fiski.


Flugulínan

Framþung lína er ákjósanleg og því meiri þyngd fremst því betra. Munið að lág staða kemur í veg fyrir langan línuburð (e. long carry). Stuttur haus er hagstæður (skothaus e. shooting head) þá er mögulegt að hlaða stöngina þrátt fyrir lítinn línuburð (e. carry).


Kasttæknin

Kastið verður bara hreyfing handleggja. Engin önnur leið er sjáanleg. Gagnleg æfing er að kasta sitjandi á kolli. Mjög góð æfing er að sitja lágt og kasta úr kayak stól eða því um líku. Þröngt verður um olnboga og lítið pláss milli línu og vatnsborðs.

Tvítog er miklu erfiðara frá kayak eða slöngubáti. Að æfa sitjandi er góð hugmynd en hindrar ekki tvítog eins mikið og að sitja í kayak.

Vegna nándar vatnsborðs er best að beina bakkasti hátt og einbeita sér að kasta yfir stangartoppinn. Takmarka fölsk köst (e. false casts) og beina línu hátt í bakkasti mun minnka líkur á að línan smelli í yfirborðið og stytta verður línuburðinn. Með þessum takmörkunum þarf að skjóta línu og tvítog er góð viðbót ef mögulegt er.



Comments


© 2023 by Every Jonah Has a Whale. Proudly created with Wix

bottom of page