top of page

Hvernig velja skal flugulínu

  • Mar 26
  • 4 min read
Ghost úr smiðju Ívars Arnar Haukssonar
Ghost úr smiðju Ívars Arnar Haukssonar

„Hvaða línu á ég að kaupa?”


Það er ekki rétta spurningin.


„Hvaða línu þarf ég?” – er miklu betri spurning

Þetta er spurning sem við fáum ítrekað og skýtur iðulega upp kollinum á rabb síðum. Það er í raun og veru ekkert eitt svar við spurningunni. Hvað um það þá stendur ekki á svörum á rabb síðunum. „Ég var að fá línu X og hún er algert æði o.s.frv..” Og meira í þessa átt - miklu meira. Svörin og ráðleggingarnar eru án efa gefnar af góðum hug og örlæti. Það er eiginlega ómögulegt að svara fyrr en þú hefur einhverja hugmynd um í hvað nota skal línuna.


Velja línu fyrir fisktegundina?

Aha, á ég að velja línu fyrir fisktegundina? Nei það er ekki rétt heldur.


Þyngd flugunnar sem nota á mælir fyrir línu valinu!

Þá erum við komin að þyngdinni á ný. Veltu þessu aðeins fyrir þér og það verður augljóst að þyngd flugulínunnar verður að passa fyrir þyngd flugunnar. Hvaða flugur á að nota er mikilvægt ekki litur þeirra og lögun heldur þyngd þeirra (og loftmótstaða).


Ferskvatn

Ímyndum okkur að tilvonandi kaupandi línunnar sé byrjandi silungsveiðimaður og hefur mikla trú á þungum „Wooly Buggers” og straumflugum. Á grundvelli vel meintra ráðlegginga reyndra kunningja (eða prakkara) er Amplitude Trout lína keypt. (Ég vísa til lína sem ég nota)

Amplitude Trout lína
Amplitude Trout lína

Amplitude Trout lína. Þetta er gersamlega frábær lína en ekki fyrir þungar flugur. Hvers vegna er hún það ekki? Frammjókkunin (e. forward taper) er tólf fet löng og þá verður varla næg orka til að snúa yfir þungri flugu. Svo, nú höfum við ráðlagt frábæra línu fyrir minni flugur en veiðimaðurinn ætlar að kasta stórum þungum flugum. Takið eftir hversu langur afturmjókkandi endi „Trout” línunnar er. Það er hægt að kasta þessari línu langt.

Hvað er góð lína til að kasta þungum straumflugum? Ég ráðlegg línu eins og „Amplitude Anadro”.


Amplitude Anadro lína
Amplitude Anadro lína


Amplitude Anadro lína. Anadro línan hefur stuttan framjókkandi enda tvö til þrjú fet og hefur orku til að snúa yfir þungum straumflugum og halda þeim á lofti einnig. Að auki er Anadro línan 1,5 stærð af yfirvikt þannig að #7 Anadro er milli línu #8 - #9. Það tryggir nægjanlega orku til að snúa yfir þungum flugum. Anadro línan er mjög góð fyrir löng köst enda nær afturmjókkandi endi hennar að sextíu fetum.


Nú um stundir fylgja margar línur ekki línustaðli (AFTM standard) vegna þess að stangir hafa orðið svo stífar að eingöngu afburða kastarar geta beygt þær með uppgefinni línuþyngd. Línuframleiðendur vita þetta og hafa því þyngt línur og fylgja því ekki staðli.


Önnur spurning er hversu langt þarftu að kasta? Ímyndum okkur að þú veiðir með litlum flugum í lítilli á. Amplitude Trout línan væri vel nothæf í það verkefni. Vitaskuld eru til aðrar línur góðar í það eins og Amplitude MPX eða Amplitude Double Taper. Hvað með litlar flugur í stórri á? Amplitude Trout væri afbragð í slíkt verkefni því að langi afturmjókkandi hlutinn leyfir löng köst. Þungar flugur í sem skella á vatnsborði eru ekki góð hugmynd í lítilli á. Þær eru þó fyrirtak í stórri á. Taktu eftir langa afturmjókkandi hluta Anadro sem er 30 fet. Slík hönnun hentar best fyrir löng köst.


Saltvatn

Bonefish eru mjög varir um sig. Ef eithvað stórt og þungt lendir yfir þeim þá eru þeir umsvifalaust farnir - og það hratt. Við notum því línur sem leggja má varlega út. Flugurnar sem við notum má auðveldlega kasta með #4 línu en vindurinn yrði erfiður mótherji með svo létta línu. Við notum því línur sem eru #7-9 til þess að geta kastað við þær aðstæður. Þetta er gott dæmi um notkun á þyngri útbúnaði en flugan sjálf krefst. Við notum iðulega smá flugur með laxa útbúnaði. Þegar ég fer að veiða Bonefish þá vel ég Amplitude Bonefish línur


Amplitude Bonefish lína
Amplitude Bonefish lína


Við saltvatnsveiðar þá notum við oftast eitthvað stórt og þungt. Því þarftu línu sem ræður við slíkt verkefni. Eða með öðrum orðum línu með stuttan frammjókkandi enda.

Amplitude Infinity Saltwater er mjög gott val í slíka veiði.

Amplitude Infinity Saltwater
Amplitude Infinity Saltwater


Ef þörf er á meira afli til að snúa yfir einhverri stórri flugu þá má nota Amplitude Tropical Titan. í þeirri línu er massaprófíllinn þannig að hún er þyngst fremst (uþb. 15 fet) og hún snýst yfir af afli.


Amplitude Tropical Titan
Amplitude Tropical Titan


Fyrst er að velja flugu - síðan línu

Þegar veiðarfærin eru sett saman er augljóslega fyrsta verkið að velja flugur. Það þarf að ákveða uþb. þyngd flugnanna sem kasta á. Þegar það er frá þá þarf að velja línu sem getur kastað þessum flugum. Mundu að þungar línur geta kastað bæði léttum og þungum flugum. Léttar línur geta kastað léttum flugum en basla við þungar flugur. Aðeins tveir þættir hafa áhrif á kasthæfni flugu - þyngdin hennar og loftviðnám.


Nú að lokum er stöngin valin

Þegar línan er valin sem getur ráðið við verkefnið þá er auðvelt að velja stöng sem hentar línunni. Markaðsetning stanga er auðvitað þannig að halda mætti að þú þurfir silungastöng og síðan laxastöng og guð hjálpi mér ef ég gleymi saltvatnsstönginni. Þetta er auðvitað helber þvæla. Ég nota NRX#8 stöng til að kasta flugum af ákveðinni þyngd og ég nota þá stöng á alla fiska sem líklegir eru til að taka flugur í þeirri þyngd. Þung lína og passleg stöng ræður við þunga flugu og einnig létta flugu. Hið gagnstæða virkar ekki. Svo ekki mæta vanvopnaður til leiks.


Það er mikilvægt að vita að ekki er nein markmiðsbreyta til við framleiðslu á stöngum. Eftir að stöngin verður til þá kastar einhver sérfræðingur mismunandi þungum línum og kveður úr um „Þessi stöng er framvegis númer #7”. Ég endurtek engar staðlaðar hlutlægar mælingar ákvarða stangar flokkunina. Þessi nýja númer #7 stöng er augljóslega best með línu númer sjö ef þú ert sérfræðingurinn. Þessi stöng gæti verið betri fyrir þig með númer átta línu og einhverjir kjósa númer sex línu. Allar stangir geta kastað nokkrum línuþyngdum það er ekkert dularfullt við það og það er í fínu lagi að nota þá línu sem þér hentar best með þessari stöng. Stundum heyri ég að það eigi ekki að yfirlína (Nota þyngri línu en stöngin er merkt fyrir, e. overline) stangir eins og það sé einhver glæpur. Þetta er þín stöng og þín lína og þú notar það sem þér hentar best. Þú hefur blessun mína.

1 Comment


Baldur Sigurðsson
Baldur Sigurðsson
Mar 27

Mjög fróðlegt og gagnlegt.

Like

© 2023 by Every Jonah Has a Whale. Proudly created with Wix

bottom of page