top of page

Hvernig fljóta flotlínur?

  • 2 hours ago
  • 5 min read
Stóra Laxá
Stóra Laxá

Flotlínur ættu að sökkva!

Hér er fjallað um flotlínu, sem er búin til úr fléttuðum fjölþátta nælon kjarna með poly-vinyl chloride (PVC) klæðningu enda algengasta tegund flugulína. Hlutfallsleg eðlisþyngd nælons er 1,2 og hlutfallsleg eðlisþyngd PVC er 1,4 (miðað við vatn sem er 1,0). Miðað við þessar tölur ætti línan að sökkva.

Spurningin er því hvers vegna flýtur línan?

Hlutfallsleg eðlisþyngd

Þegar hlutfallsleg eðlisþyngd (h. e.) meira en 1,0 þá er efnið þéttara en vatn og sekkur. En efni er undir h.e. 1,0 þá flýtur það.

Endi flugulínunnar er mikilvægasti þátturinn

Jafnþykki endi flugulínunnar (e. terminal level tip) verður að fljóta. Við þurrfluguveiðar þarftu línu sem flýtur. Við viljum einnig leggja út línuna mjög mjúklega en það kallar á grannan línuenda. Ef línuendinn sekkur dregur hann niður tauminn. Á hinn bóginn ef taumurinn sekkur dregur hann niður flugulínuna. Hlutfallsleg eðlisþyngd línuendans er ~ 0,85 (sjá síðar) og sá partur vill fljóta og gerir það nema eitthvað dragi hann niður. Taumurinn hefur h.e. 1,2 og þegar/ef hann sekkur sekkur allt kerfið og flugan með. Mikilvægasti hluti línunnar er jafnþykki (e. level) línuendinn sem er sex tommur að lengd. Það er auðvelt að láta þykkan hausinn/belginn á flugulínunni fljóta eins og kork. Frá hausnum fram á við mjókkar línan og endar í sex tommum af sléttum/beinum enda. Þvermál endans er 0,037 tommur og hlutfallslegt magn klæðningarinnar er mun minna en í hausnum sem er 0,056 tommur að þvermáli (SA lína Trout 4#).

Kjarninn og PVC

Kjarninn er fléttaður úr nælon fjölþráðungi. Á milli ofnu þráðanna er eitthvað loft sem fangast þar þegar kjarninn er klæddur með PVC. Þetta gerir að h.e. er rétt undir 1,0. Árið 1954 þá bætti SA loftbólum við í PVC klæðninguna og nú flaut línan. Sú lína er talin vera fyrsta nútíma flugulínan. Seinna eða 1959 bætti SA við örblöðrum í PVC klæðninguna. Hlutfallsleg eðlisþyngd PVC klæðningarinnar er nú 0,85 og þar með er vandinn með eðlisþyngd leystur.


Tilfærsla (e. displacement)

Hlutur sem er settur í vatn mun ryðja frá sér tilteknu rúmmáli. Þetta er lögmál Arkímedesar (sjá https://is.wikipedia.org/wiki/Uppdrif). Sérhver hlutur sem sökkt er að hluta til eða alveg í vökva léttist sem nemur þyngd þess vökva sem hann ryður frá sér. "Léttist" þýðir hér að hann fær lyftikraft eða uppdrifskraft. Núna vegur línan minna en vatnið sem hún ryður frá sér og því flýtur línan.


Yfirborðsspenna

Yfirborðsspenna er tilhneiging vökva til að hafa sem minnst yfirborð. Við höfum öll séð járn-nálar fljóta á vatni vegna yfirborðsspennunnar. Yfirborðsspenna vatns er mikil. PVC-ið er vatnsfælið. Með því að bæta við efnum í yfirborð línunnar (efnin eru leyndarmál) þá má auka vatnsfælni PVC enn frekar.

Sílikon sem lekur úr línunni eykur vatnsfælnina og eykur þar með flothæfnina. Við getum einnig smurt línurnar og taumana með sílikoni með góðum árangri. Við vitum líka að hreinar línur skjótast betur og þær fljóta betur. Óhreinindi minnka vatnsfælni línunnar  - svo nú er að þrífa línurnar og bera sílikon á þær.


Áferð

Vegna yfirborðsspennunar er vitað að smáir hlutir með meira yfirborði munu fljóta betur en sami hlutur með minna yfirborði. Það má auka yfirborð flugulínu með því að breyta  áferðinni (e. texture) þannig að yfirborð í tengslum við vatn eykst og línan flýtur betur. Til að líkja eftir þessu voru hannaðar línur með grófri áferð. Línur sem eru dældaðar hafa minna yfirborð frá sjónarhorni lykkjanna á flugustönginni og má kasta lengra. Dældirnar geta valdið ókyrrð á lofti við línuna og minnkað loftmótstöðu (sambærilegt við dældirnar í yfirborði golfbolta). Þegar slíkri línu er kastað þá heyrist núningurinn í lykkjunum og sumir kastarar vilja það ekki.  Mjög gróf áferð á línu er vond fyrir fingurna og línur með Sharkskin yfirborði sem komu fram  árið 2007 gátu verið varasamar og jafnvel skorið fingur. Nýjar línur er miklu betri viðkomu.



Lotus áhrifin

Þegar rignir á lotusblöð renna regndroparnir strax af. Það kemur í ljós að yfirborð lotus blaðanna er yfir-vatnsfælið. Á þeim er urmull af smásæjum oddhvössum broddum. Á sambærilegan hátt má auka vatnsfælni flugulínunnar með því að breyta yfirborði  hennar. Þessi áferð er einungis notuð á enda flugulínunnar.


Línuendinn
Línuendinn


Í hnotskurn


Flotlínur eru léttari en vatn og eru vatnsfælnar og fljóta hærra á vatnsborði en væru þær vatnssæknar. Gera má PVC línur meira vatnsfælnar með efnum og breyta áferð þeirra.


Saltvatn

Saltvatn hefur h.e.1,024 og er því aðeins þéttara en ferskvatn. Það þýðir að línur fyrir saltvatn geta verið aðeins þéttari og þannig grennri. PVC kápa saltvatnslínu sem er þéttari er þannig einnig sterkari (PVC verður ögn veikara við viðbót aukaefna) og grennri lína hefur minni loftviðnám sem gagnast við að kasta.


Lögun línu og taums

Við höfum sjálfsagt öll átt línu sem er eins og gormur þegar hún kemur af hjólinu. Þetta er flotlína en hún mun sökkva með þessa lögun. Línan sem er ofan vatnsborðs mun ýta neðri hlutanum niður fyrir vatnsborðið og línan flýtur alls ekki.

Þegar þetta gerist er mikilvægt að teygja duglega úr línunni fyrir notkun. Fyrir tauminn gildir það sama og hér að ofan og því ber einnig að teygja úr honum.


Samskeyti línu og taums

Þegar vatnsborð er kyrrt þá fljóta taumar vel. Aðstæður eru sjaldnast þannig. Ókyrrt vatnsborð verður til þess að hlutar taumsins sökkva og þeir hlutar fljóta ekki aftur vegna þess að hlutfallsleg þéttni nælons er 1,2. Það er auðvelt að halda 0,005 tommu þykkum taumenda á floti en ekki eins auðvelt ef taumendi er 0,030 tommur að þykkt. Til að tryggja að taumurinn fljóti þá þarf að strekkja hann (sjá ofan). Síðan má bera á hann silíkon enda er taumurinn ekki sjálfsmyrjandi eins og línan og áferð hans er slétt.

Taumtenging línunnar er einnig mikilvæg. Fyrir línur með takmarkað flot í línuendanum (#2-3) má nota naglahnút með tveimur vafningum til að tengja taumendann við línuna. Þyngri línur hafa enda sem fljóta betur þannig að fleiri möguleikar eru á tengingu. Svo eru þeir sem hafa sjö til tíu vafninga naglahnúta með rausnarlegum skammti af lími til að styrkja þá. Slíkur hnútur sekkur eins og steinn og dregur niður alla útgerðina með sér. Ef naglahnútur, sem er „compression” hnútur, er rétt hnýttur og rétt hertur þá verður hann ekki sterkari með lími.

Þegar endalykkjan er klippt af grönnum flugulínum (t.d. #1-5) þá opnast að holum kjarna línunnar og svolítið af vatni getur sogast inn. Sumir setja þar dropa af vatnsheldu lími á endann (passa þyngdina) til að loka þessari leið og það virkar í einhvern tíma. Rétt hnýttir og rétt hertir naglahnútar loka þessari leið einnig. Jafnvel þó að eithvað vatn sogist inn þá þvingast það út aftur við köstin svo þetta mál ætti ekki að skapa vanda.

Að lokum skaltu vera meðvitaður/meðvituð um efnið sem þú notar. Nælon hefur hlutfallslega eðlisþyngd 1,2 en flúoro hefur 1,8. Ekki nota flúoro með þurrflugum og búast við að það fljóti.

Comments


© 2023 by Every Jonah Has a Whale. Proudly created with Wix

bottom of page