top of page

Að bæta endum við flugulínur (e. tips)

  • Mar 5
  • 3 min read

Endar eins og „Versileaders og Polyleaders” – og þess háttar.



Almennt

Flugulínur eru hannaðar þannig að þegar bætt er við taumi af réttri þyngd og síðan flugu þá verður auðvelt að kasta línunni og hún og taumurinn leggjast beint út (e. turn over) - og þú ert ánægður. Með öðrum orðum, línurnar eru hannaðar til að leggja út vissa þyngd, þ.e.a.s. þyngd taumsins og flugunnar.

Ég hef margoft klifað á því að lína, sem er kastað án taums, mun slá (e. kick). Orkan sem eftir er í línunni kemst ekki í tauminn og fluguna þar sem hún eyðist. Orkan á nú enga leið aðra en til baka upp línuna og hún slær. Allar flugulínur eru hannaðar fyrir að hafa taum og flugu á enda flugulínunnar.


Hönnun á flugulínum

Flugulína er því hönnuð til að vinna með ákveðna þyngd, sem þú bætir við með taumnum og flugunni. Línu, plús taumi og flugu, er nú auðveldlega kastað eins og til stóð. Ef við bætum við mjög mikilli þyngd með þungri flugu þá verður erfitt að kasta á ný. Þannig að allar línur hafa ákjósanlega þyngd fyrir þá línu. Það gefur að skilja að ákjósanleg þyngd er alltaf háð getu kastarans.

(Tvíhendulínur eru hannaðar eins með einni undantekningu, Skagit linur krefjast að enda plús taumi sé bætt við til að það kastkerfi virki.)



Fjöldi enda er til

Allir línu framleiðendur framleiða enda sem bæta má við flugulínu sé þess óskað. Ofgnótt enda af ýmsum lengdum og þéttleika eru fáanlegir. Þeir eru kallaðir t.d. Versileaders - Polyleaders o.s.frv.. Þeir eru gerðir úr PVC plasti eða Pólýúretan og þeim er ætlað að bæta við enda flugulínunnar og síðan er taumi bætt við endann. Þessir endar geta bæði verið frammjókkandi (e. tapered) eða beinir (e. level). Hinsvegar er þyngd þessara enda venjulega ekki getið á pakkningu.


Hvers vegna að nota enda?

Auðvitað má bæta þessum endum við línur. Spurningin er hvers vegna ætti að gera það? Þú ert við veiðar með flotlínu og ekkert gengur. Vinur þinn, sem er með sökkenda, er sífellt í fiski. Þú getur bætt við hægsökkvandi - eða sökkenda við línuna til að koma flugunni niður.

Viðbót enda (þyngd) á flotlínu sem ekki er hönnuð til að taka við þessari þyngd er bara fljótleg einföld leið til að breyta flotlínu í sökkenda línu en það kostar. Slíkir endar eru miklu mun þyngri en venjulegir taumar (16 punda taumur sem ég hef vegur 0.72 grömm). Þyngd endana gæti verið u.þ.b. 3-5 grömm en oftast er engin þyngd gefin upp, en hún mun verða miklu meiri en þyngd taumanna. Þyngd endans og þyngd taumefnis og flugu er nú bætt við og verður samanlagt á mörkum eða yfir þess sem stöngin þolir. Fyrir byrjanda verður torvelt að kasta þessu eins og gefur að skilja. Þegar þú lítur á þessa enda þá sérðu markaðsetninguna – „Auðvelt að kasta og breytir flotlínu í sökkendalínu“  svona geta góðir kastarar skrifað og þeir ráða við þessa auka þyngd án efa. Byrjendur og meðal kastarar munu þjást.



Þyngd á ný

Gallinn á endum er því að þyngdin og samspil aukinnar þyngdar endans við þyngd flugu haussins verður mikilvægast. Því er mun betra auðvitað að bæta léttum enda við þunga línu fremur en þungum enda við létta línu.

Hvaða línu sem er má breyta þannig að hún getur kastað svona endum án vandræða ef frammjókkandi endi hennar er styttur. Þá verður meiri massi í línu endanum sem leyfir nú auðvelt kast á þungum enda. Þegar þyngdin á enda flugulínunnar er sambærilegur við þyngd endans þá ertu í góðum málum. Við gætum þurft að fórna öllum frammjókkandi hluta flugulínunnar til að fá góða þyngdarsamsvörun milli línu og enda.



Comments


© 2023 by Every Jonah Has a Whale. Proudly created with Wix

bottom of page