Tilbúnir taumar - no2
- Feb 13
- 4 min read
Mikið framboð er af tilbúnum taumum. Ég nota SA tauma (Scientific Anglers) vegna þess að ég veit nákvæmlega hvað ég fæ og allar upplýsingar sem ég þarf eru gefnar upp.
Öll fyrirtæki sem framleiða tauma gefa up lengd og slitstyrk en ef þvermál vantar kaupi ég taumana ekki. Hér eru öll mikilvæg þvermál gefin (neðan).
Ég hef skilgreint þrjá parta taumsins. Fyrst er jafnþykkur endi taumsins sem þarf að vera 70% af þvermáli enda flotlínunnar. Síðan kemur miðparturinn sem er frammjókkandi og að lokum kemur jafnþykkur endinn (e. tippet). Taumendin þarf að passa u.þ.b. fyrir öngulinn sem nota á.

Tilbúnir taumar eru afbragðs góðir. Þá má fá í ýmsum lengdum, styrkleika, sverleika og mýkt. Það eru til tilbúnir taumar fyrir allar aðstæður. Ég hvet alla byrjendur til að nota tilbúna tauma í byrjun. Mónó er miklu sterkara en áður og gæði taumana hafa aukist gríðarlega. Ef veiðimenn finna ekki taum við sitt hæfi þá þurfa þeir að læra að kasta betur.
Tilbúnir taumar hafa flestir tilbúna lykkju á línuendanum. Þegar slíkur taumur er notaður þá þarf bara að hafa áhyggjur af einum hnút - þessum sem heldur flugunni.
Til eru hnútar til að hnýta undirlínu við hjól, undirlínu við flugulínu, flugulínu við taum og að lokum taumenda við fluguna. Hnúturinn sem læra þarf fyrst er í endahnúta hópnum sem sjá má á vefsíðunni:
Þessi síða hefur 34 endahnúta sem eru nothæfir. Það eru eflaust til fleiri. Ég nota klassískan fiskihnút (e. clinch knot) og stundum svokallaðan Uni hnút. Engu máli skiptir hvaða hnút þú velur ef hann er illa hnýttur. Það breytir ekki öllu hvaða hnútur verður fyrir valinu. Veldu einn og notaðu alltaf þá verður hann vel hnýttur sem er mikilvægast. Sá á kvölina sem á völina.
Tilbúnir taumar
Á síðum framleiðanda má finna urmul tauma fyrir ýmsar aðstæður. Silungataumar, laxataumar, og saltvatnstaumar (fyrir bonefish permit, og redfish o.s.frv.) Þeir fást í lengdum frá 4 fetum til 13,5 feta. Ýmsir styrkleikar eru auðvitað einnig í boði. En breyturnar sem skipta máli eru styrkleiki, lengd og þvermál taumsins í báða enda.
Vek athygli á markaðsetningu tauma sem „silungataumar“ - „laxataumar“ og „saltvatnstaumar“. Þetta eru allt saman hágæða samfjölliða (e. copolymer) nælon með hlutfallslega þéttni 1,2. Taumarnir eru ekki með meðvitund og vita ekki hvar þeir eru. Fiskunum er líka sama um markaðssetninguna. Það má því nota hvern þann taum sem við viljum og hvar sem við veiðum ef styrkleikinn, þvermálin og lengd eru okkur að skapi.
Lengd tauma
Hvenær og hvers vegna veljum við stuttan eða langan taum? Venjulega er það tengt skyggni. Ef vatn er litað eða ef dimmt er þá er í fínu lagi að nota mjög stutta svera tauma. Ef vatn er alveg tært, skyggni gott, heiður himinn og stillt þá þarf lengri taum og fínna taumefni. Lengd taums er einnig háð stærð og þyngd flugunnar. Það er mjög erfitt að kasta þungri flugu með löngum taum. En ef flugan verður blýþung má kasta henni eins og um kaststöng væri að ræða. Það má finna 30 feta tauma sem eru notaðir í svokallaða „Euro nymphing“ en þá eru notaðar afar þungar flugur - og skriðþungi flugnanna dregur út tauminn - flugustöngin er því notuð eins og kaststöng.
Fjögurra feta taumur
Tilvalinn fyrir sökklínur og einnig nothæfur fyrir línur með glærum enda fljótandi eða hægsökkvandi. Auðvelt er að kasta þessum taumum.
Sjö og hálfs feta taumar
Stuttir kraftmiklir og tilvaldir fyrir stórar/þungar flugur. Opnaðu bugina þegar kastað er með svona þungum flugum. Þessari taumlengd er einnig auðvelt að kasta.
Níu feta taumar.
Þessi taumlengd er staðal-lengd. Þessa lengd nota ég mest enda er hún hagstæð í flestum aðstæðum. Ögn erfiðari fyrir byrjenda að kasta en 7.5 feta taumur.
Ellefu feta taumur.
Þessi taumur er nothæfur í frábæru skyggni - þegar vatn er tært og spegilslétt, og sólríkur dagur og fiskar varir um sig. Þessi tvö aukafet gera það að verkum að fyrir byrjendur er miklu erfiðari að kasta þessum taumum.
Þrettán og hálfs fet langur taumur.
Fyrir afburða kastara. Ég mæli alls ekki með svona löngum taumum fyrir byrjendur.
Sökklínur
Þegar sökklínur eru notaðar (hrein sökklína, lína með sökkenda, eða hægsökkvandi lína með glærum enda) þarf ekki að nota langa tauma. Fjögura til fimm feta taumar eru alveg nóg. Flotlínur með glærum flotenda þurfa heldur ekki mjög langa tauma og er 4-5 feta taumur er því vel nothæfur.
En hvaða taum….?
Tvær tegundir tauma eru nýlunda (mynd að neðan). Þegar egnt er fyrir tennta fiska er oft notast við tvö fet af vír í endann. Það gat verið nokkuð bras að koma vír fyrir en nú er það mál leyst (mynd 2). Tarpon hefur engar tennur en innanverður munnur hans er fremur grófur og oft nuddast taumurinn í sundur þess vegna. Því var notað svokallað „shock“ taumefni á taumendann. Fyrst er valinn taumur sem hæfir tarpon en á enda hans var hnýtt tveimur fetum af miklu grófara girni til að koma í veg fyrir að taumurinn nuddaðist í sundur (mynd 6). Hér er sýnishorn af taumum sem fáanlegir eru frá stysta til lengsta sem ég fann frá einum framleiðanda.
Fyrir Ísland eru silunga og laxa taumarnir topp vara. Girnið er mjúkt og auðvelt að hnýta. Taumarnir leggst vel út (e. turn over). Þegar þeir eru teknir úr umbúðunum og komnir á sinn stað er þjóðráð að strekkja þá.
Ég hef reynt að útskýra hvers vegna og hvernig taumur er valinn. Nú getur þú valið taum fyrir mismunandi aðstæður við þínar veiðar. Mundu að taumurinn er háður kastgetu þinni og einnig veðri. Í vindi verður styttri taumur fyrir valinu. Í blíðviðri veldu lengri taum en þó ekki lengri en þú getur kastað.
Valið í hnotskurn
1. flugulínan stýrir þykkt „butt“ enda taumsins.
2. lengd taumsins ákvarðast af aðstæðum á veiðistað (veður - litað vatn) og einnig stærð og þyngd flugunnar og síðast en ekki síst kastgetu þinni.
3. slitstyrkur ákvarðast af stærð og tegund fisks.

























Comments