Þegar flugulína „slær“
- Feb 26
- 3 min read

Allir kastarar hafa fundið flugulínu „slá“. Hvað er það? Flugulínan slær þegar hraði línuenda eykst skyndilega í lok kasts og endinn slæst til líkt og svipuendi. Í lok kasts er umframorka í línuendanum þegar línan réttir úr sér. Þessi orka verður að fara eitthvert og línan slær til að dreifa og eyða orkunni. Þegar flotlínu er kastað þá er slátturinn að mestu leyti kastvilla sem verður til vegna of mikillar orku, en nota má umframorku við ákveðin köst (sjá síðar). Línur þar sem massanum hefur verið ýtt fremst í línuna eiga til að slá hvort heldur þær eru með sökkenda eða flotenda. Massinn fremst er vandinn ekki þéttleikinn í sjálfu sér. Þegar línu með þungum sökkenda er kastað þá mun hún slá í mismunandi mæli. Kíkjum á breyturnar.
Kastarinn
Þegar ég kasta flotlínu þá nota ég eins litla orku og mögulegt er til að leggja út línuna og tauminn í beina línu fyrir framan mig. En ég get látið hvaða línu sem er slá þegar ég nota meira afl. Þetta er kastvilla nema þú ætlir þér að sveigja línuna í lok kastsins. Til eru tvö köst þar sem við notum orku til að sveigja línuna. Fyrra kastið er kallað „Tuck Cast“ (hef ekki gott íslenskt nafn), en þá köstum við í lóðréttu plani og ofgerum í beitingu orku, og línuendinn og taumurinn skjótast niður (e. tuck down) og flugan lendir fyrst á yfirborðinu. Þetta kast er notað þegar flugan á að sökkva hratt (t.d. við það sem á ensku heitir nymphing)

Hér má kynna sér „tuck cast”
Seinna kastið er sveigkast (e. curve cast) þegar við viljum sveigja línuendann framhjá einhverri fyrirstöðu t.d. grjóti í vatninu. Sveigkast má nota þegar kastað er í láréttu plani. Eff þú kastar línunni með allt of miklum krafti (e. overpower) þá sveigir línan/taumurinn til vinstri með láréttu kasti hægra megin og öfugt.


Hér er hægt að kynna sér sveigköst:
Aðferðin er sú sama og tuck cast - sama regla gildir og þetta er sama kastið. „Tuck cast“ er í lóðréttu plani en sveig kastið í láréttu plani.
Taumurinn
Lína án taums, mun slá hversu varlega sem kastað er. Farðu bara og sannreyndu. Það þarf að vera næg orka eftir í flugulínunni til að leggja út tauminn og fluguna. Og nú ætti að vera augljóst hvers vegna meiri orku er þörf þegar flugan þyngist). Taumurinn er hannaður til að dreifa/eyða umframorkunni en samt hafa næga orku til að leggja út fluguna. Því þarf að hanna tauminn til að það sé mögulegt. Ímyndaðu þér útkomuna ef þú setur 6X taumefni sem er 0.13 millimetrar á #12 flugulínu sem er 1.08 millimetrar. Það mun augljóslega ekki ganga. Massi hreyfir massa er mantran sem ég klifa á. Því er augljóst að massi taumsins er bara of lítill til að taka við umframorkunni úr línunni. Þvermál taumsins gefur til kynna massa taumsins, ekki styrkleika hans.
Hönnun línunnar

Of mikil umframorka getur verið í línunni vegna hönnunar hennar. Allar línur sem eru með mestan massann fremst munu vissulega slá meira en flestar aðrar línur. Sökkendar slá meira vegna þyngdar þeirra (ekki þéttleika), en flotlína eins og að ofan mun einnig slá. Það er í lagi því þessar línur eru hannaðar til að kasta stærri flugum og fyrir sökkendana þá þurfa þeir að sökkva hratt þannig að mikill massi er fremst. Okkur stendur á sama, við erum ekki að kasta þurrflugum með þessum línum. Þessi hönnun er góð fyrir stórar þungar flugur. Ef endinn slær ekki þá sekkur hann illa og veiðir illa. Ef endinn sekkur vel og veiðir vel þá er erfiðara að kasta honum. Sá á kvölina sem á völina.
Sökklínur og sökkendar eru framleiddir með smá ögnum af „tungsten“ í PVC kápunni. Það eykur þéttleika þess hluta línunnar. Sökkendarnir eru einnig grennri en fljótandi hausinn þannig að loftmótstaða verður minni og hraðinn eykst í línum sem eru þannig hannaðar.
Fyrir „dellukallana“
Línuslátturinn getur verið lúmskur. Einn af vinum mínum klippir alltaf verksmiðju-framleiddu lykkjurnar af nýjum #2-5 línum og festir tauminn með naglahnút. Honum finnst lykkjan slá örlítið ef lykkjan er til staðar og kann ekki við það. Tengingar á milli línu og taums leiða til smá klumps af massa þar sem við viljum ekki hafa hann. En með réttum taum og tengingu má gera umskiptin mjög slétt.



Comments